27.8.2008 | 23:37
Brandari dagsins...
Efnafræðikennarinn í gagnfræðaskólanum var farinn að finna fyrir áhugaleysi í tímum svo hann ákvað að bregða út af laginu og taka einn tíma í umræður um frumefnin.Hann bað börnin um að nefna það frumefni sem þau helst vildu eiga og koma með skýringar á valinu.Jói byrjaði og sagði: Ég vil eiga gull. Ef ég ætti nóg af gulli, gæti ég keypt mér stóran fjallajeppa og ferðast hvert á land sem er.Guðrún kom næst með svar og sagði: Ég vil eiga platínum. Það er verðmætara en gull og ef ég á nóg af því, gæti ég átt almennilegan Mercedes Benz sportbíl.Næst snéri kennarinn sér að Óla og spurði hann. Óli hikaði aðeins en svaraði svo: Ég myndi velja sílikon. Næst bað kennarinn um skýringu og Óli svaraði: Mamma lét nýlega græða í sig tvo sílikonpúða og þið ættuð að sjá gæjana sem koma í heimsókn til hennar, sumir eru á fjallajeppa og aðrir á sportbíl.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.