Hugrenningur dagsins...

Áfram heldur ævi þín, inn í óvissuna rétt eins og mín, en nú langar mig að líta við, yfir leiðina glöt...enginn sleppur alveg hreint, það veit alvaldur, að víst hef ég reynt, ég hef þraukað en þrái frið eftir þrúandi törn...og allar mínar syndir, sálinnar bál er ég veit að þú fyrirgefur, syndir, eins og gamlar minningar fylgja mér, syndir, setjast að í mér á meðan lífið sinn tilgang vefur, syndir, eftirsjá...oft er rétta áttin týnd, það er aldrei nokkur miskun sýnd, það er aldrei talað undir rós, enginn umvefur þig....loksins hef lært af þeim, og mig langar bara að komast heim, þegar að skín á mig þitt skæra ljós, festast skuggarnir við...syndir, þær læðast að þér og hæðast að mér, en nú er hjarta mínu létt, ég veit að þú sleppur alltaf burt, ég þekki þig rétt, misstökin mín þau eru ekki þín, hver metur verkið yfirleitt, því kannski er allt sem er gert einhvers virði, segðu mér hvað þú telur vera syndir ?

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðný Einarsdóttir

Góð lesning,

Guðný Einarsdóttir, 21.1.2009 kl. 14:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband