Vissir þú....

.... að ef gínur í búðum væru raunverulegar konur væru þær of grannar til þess að fá blæðingar?
 .... að af 3 milljörðum kvenna í heiminum eru aðeins u.þ.b. 10 súpermódel?
 .... að Marlyn Monroe notaði stærð 14 (ameríska, sem er sama og 44 í evrópu) og hafði alla karlmenn í vasanum án þess að nokkur kvartaði yfir kílóunum á henni?  W00t(hahahaha sama stræð og ég er í og hún var nú ekkert smá flott Gyðja)
 ....að ef Barbie væri alvöru kona væri hún svo vansköpuð að hún yrði að ganga á fjórum fótum?
 .... að konur eru að meðaltali 65 kíló (ekki hávaxnar) og nota stærðir 12 til 14 (amerískar = 42-44 í evrópu)?
 .... að ein af hverjum 4 konum á háskólaaldri þjáist af einhverskonar átröskun?
 .... að fyrirsæturnar í glanstímaritum og sjónvarpi eru lagaðar til í tölvu eða fiffaðar með lýsingu og ljósmyndatrikkum?
 .... að rannsóknir hafa sýnt að fimm mínútna lestur glanstímarita veldur þungu skapi, skömm og sektarkennd hjá um 70%kvenna
 .... að fyrirsætur fyrir 20 árum voru 8% léttari en konur almennt?
 .... að fyrirsætur í dag eru 23% léttari en konur almennt?
Fegurð konunnar er ekki hægt að smækka niður í mælieiningar heldur felst hún í þeirri útgeislun sem ástin á sjálfri sér veitir hverri og einni.
Fegurð felst í þroska og góðri sjálfsímynd og fer einungis batnandi með árunum.
Spurningin er ekki um fatastærðir, kílóafjölda, hæð eða háralit, heldur er hún spurning um að læra að elska sjálfa sig frá toppi til táar.
Hjálpumst að við að ýta undir góða sjálfsímynd hvorrar annarar. Við erum allar æði...........og ekki gleyma því!

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband